Heimild: Vefur Arsenal
Laurent Koscielny, nýjasti leikmaður Arsenal, segist vera himinlifandi með að vera kominn til Lundúnarliðsins og hlakkar hann mikið til að spila í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu.
Ferill Koscielny hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár en á einungis örfáum árum er þessi 24 ára gamli pólski miðvörður búinn að taka stökkið til eins besta liðs Englands frá því að spila í þriðju deild Frakklands, sem verður að teljast magnaður árangur.
Koscielny mun klæðast treyju númer sex og mun hann líkast til spila sína fyrstu leiki á Emirates leikvanginum undir lok júlí þegar liðið mætir AC Milan, Celtic og Lyon í Emirates bikarnum svokallaða.
„Ég er mjög spenntur yfir því að vera kominn til Arsenal. Þeir eru eitt af stærstu félögum Evrópu og eru með marga frábæra leikmenn. Ég hlakka mikið til að spila í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni með mínu nýja félagi. Svo er Arsene Wenger líka einn af bestu knattspyrnustjórum heims og ég hlakka til að vinna undir hans stjórn og gera mitt besta fyrir stuðningsmenn Arsenal," sagði þessi nýi leikmaður.
Ekki er heldur útilokað að Koscielny fái nægan spiltíma, sérstaklega ef hinir samningslausu Mikel Silvestre og William Gallas yfirgefa félagið.
Þeir sem vilja sjá myndir af þessum nýja leikmanni geta farið á opinbera vefsíðu Arsenal.




