Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 28. júlí 2010 07:43
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Ólafsvíkingar fara í sjósund fyrir leiki
Mynd: Vikingurol.is
Brynjar Gauti Guðjónsson, fyrirliði Víkings Ólafsvíkur, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 síðastliðinn laugardag. Þar greindi Brynjar meðal annars frá því að leikmenn liðsins skella sér alltaf í sjóinn fyrir leiki.

,,Það er misjafnt hvað menn fara langt en sumir stinga sér alltaf," sagði Brynjar Gauti.

,,Antonio (Maria Ferrao Grave), sjúkraþjálfarinn er mikill sjósundsmaður og hann stakk upp á þessu fyrir Stjörnuleikinn. Það virkaði og við höfum haldið þessu áfram."

Víkingur mætir FH í undanúrslitum VISA-bikarsins klukkan 19:15 í kvöld og mikil spenna er hjá Ólafsvíkingum fyrir þann leik.

,,Ég held að það sé enginn í liðinu sem hefur nokkurn tímann spilað þarna þannig að það verður gaman að fara og mæta alvöru úrvalsdeildarliði á þeirra heimavelli."

,,Við sýndum á móti Stjörnunni að ef allir leggja sig 100% fram og eru tilbúnir í leikinn þá getum við strítt hvaða liði sem er á landinu."


Sjá einnig:
Smelltu hér til að hlusta á útvarpsþáttinn frá því á laugardag

Slapp
banner
banner
banner