Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
   þri 27. júlí 2010 23:36
Alexander Freyr Tamimi
Jóhannes Karl: Engin tilviljun að Valur tapi
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er mjög sætt. Það er virkilega ánægjulegt að klára leiki í uppbótartíma og fyrir mig er alltaf gaman að koma á Stjörnuvöllinn,“ sagði Jóhannes Karl Sigursteinsson við Fótbolta.net eftir 2-1 sigur Breiðabliks á Stjörnunni í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Breiðablik tryggði sér sigur með marki frá Jónu Kristínu Hauksdóttur í uppbótartíma og er þetta ekki í fyrsta skiptið sem Blikar vinna Stjörnuna á slíkan hátt.

„Við höfum verið að gera mikið að þessu undanfarið og þetta er þriðji leikurinn í röð gegn Stjörnunni sem við vinnum í uppbótartíma, þannig að við vissum allan tímann að þetta yrðu níutíu mínútur plús. Þegar að þessi lið mætast er þetta alltaf stál í stál.“

Topplið Vals tapaði sínum leik í dag og eru Blikar einungis þremur stigum frá Íslandsmeisturunum en hafa leikið einum leik meira. Eiga þær enn möguleika á titlinum?

„Við verðum bara að vona og klára okkar prógram, það er númer eitt tvö og þrjú. Við eigum aldrei séns í Val ef við töpum okkar leikjum,“ sagði Jóhannes Karl en viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.
Slapp
banner