Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
   mið 28. júlí 2010 00:45
Hafliði Breiðfjörð
John Andrews: Ég þarf engan svefn
Kvenaboltinn
John Andrews.
John Andrews.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
,,Þetta voru ekki bestu úrslitin en það var hægt að sjá tempóið og það sem við vorum að reyna að gera, gefa boltann rétt og stelpurnar leggja hart að sér," sagði John Andrews þjálfari Aftureldingar eftir 3-1 tap gegn FH í kvöld. En vantaði liðið ekki baráttu andann sem FH liðið hafði í fyrri hálfleik?

,,Ég er alveg ósammála því. Mér finnst liðið hafa mikinn anda og það er ein ástæðunum fyrir því að ég tók við liðinu. Það mátti sjá á öllum í hálfleik, þær vildu ólmar fara út á völl og gera eitthvað. Það er einn af styrkleikum félagsins. Við erum ungt félag með unga leikmenn og við munum verða betri og betri."

,,Þessar stelpur þarna inni munu gera það. Ég er ósammála með baráttuandann, mér fannst þær sýna mikinn baráttuanda, og þær munu sýna meira í næsta leik og enn meira í þar næsta. Kannski sástu meira í seinni hálfleik en það var útilokað að segja að það hafi ekki verið baráttu andi í fyrri hálfleik. Það var bara meira, við töluðum saman í hálfleik og ég reyndi að gera þær enn einbeittari fyrir seinni hálfleik. Mér fannst þær gera það."


Tap í fyrsta leik hjá John sem tók við af Ásgrími Helga Einarssyni í vikunni en hann ætlar sér að snúa dæminu við næst.

,,Auðvitað. Ég geri mitt besta og eins og ég segi er ég að vinna með frábærum hópi leikmanna. Þær leggja hart að sér og eru heiðarlegar. Allar koma þær til æfinga og leggja hart að sér þar. Það er bara hægt að ná árangri þegar maður leggur svo hart að sér."

Í stúkunni í Kaplakrika mátti sjá hóp leikmanna Aftureldingar í æfingagalla sem ekki voru í hóp í dag.

,,Eins og ég sagði erum við með frábæra leikmenn í félaginu. Sumir þeirra voru í stúkunni í dag meiddir, en þannig er fótboltinn og við verðum að taka á því. Mér fannst við gera það vel í dag, ef við hefðum skorað fyrsta markið þá hefði þetta orðið annar leikur."

John þekkir vel til Aftureldingarliðsins eftir að hafa komið til félagsins árið 2008 og unnið þar síðan.

,,Auðvitað, ég lít alltaf á þetta sem félagið mitt, karlalið eða kvennalið. Það er frábær andi í félaginu. Það mun gefa okkur góðan enda á tímabilinu, ég veit það, leikmennirnir vita það og stjórnin veit það."

John þjálfar sjálfur þrjá flokka fyrir Aftureldingu, kvennaliðið, 2. flokk karla og Hvíta Riddarann sem er í 3. deildinni og er varalið félagsins, auk þess að spila með meistaraflokki karla en fær hann einhvern svefn?

,,Ég þarf engan svefn, allir sem eru í fótbolta eru í honum því þeir elska hann, ég fæ bara að gera meira af því en allir aðrir.
Slapp
banner
banner
banner