,,Við þurftum á þremur stigum að halda en miðað við hvernig leikurinn þróaðist þá vorum við stálheppnir að halda stiginu í restina," sagði Hjörtur Júlíus Hjartarson framherji ÍA eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Fjölni í kvöld.
,,Það var eitt lið á vellinum fyrsta hálftímann eða eitthvað svoleiðis og við áttum að skora þá. Við hleypum þeim aftur inn í leikinn, etir það er þetta nokkuð jafnt, við komum til baka í seinni hálfleik og í restina voru þeir aðeins öflugri. Erfiður útivöllur og eitt stig og við erum ágætlega sáttir með það."
Hjörtur skoraði jöfnunarmark Skagamanna í síðari hálfleiknum en hann kom þá boltanum í netið af stuttu færi eftir mikinn atgang við mark Fjölnis.
,,Maður nennir ekki að vera að hlaupa út um allt. Það er betra að maður planti sér einhversstaðar og voni að boltinn komi þangað og það gekk í þetta skiptið."
Skagamenn hafa verið að fikra sig upp töfluna eftir erfiða byrjun en liðið er núna í sjötta sætinu.
,,Ég held að þetta sé sjöundi leikurinn í röð sem við erum ekki búnir að tapa og þannig færum við okkur nær þessu öllu saman. Við eigum Leikni, Víking og Þór í næstu þremur leikjum og góð úrslit í þessum leikjum setja okkur aftur í baráttuna."
,,Við þurftum fyrst og fremst að drulla okkur frá fallsvæðinu og koma okkur af stað. Það hefur gengið og síðan verðum við að skoða í framhaldinu hvernig gengur ef við náum góðum úrslitum í þessum þremur leikjum."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















