,,Við ætluðum okkur þrjú en ég held að við eigum ekki mikið meira skilið en eitt stig í þessum leik. Við vorum afspyrsnuslakir í þessum leik," sagði Gunnar Valur Gunnarsson fyrirliði Fjölnis eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn ÍA í kvöld.
Fjölnismenn voru nálægt því að ná að skora sigurmark í viðbótartíma en liðið átti þá tvo skalla í slá í sömu sókninni.
,,Það hefði verið sætt að fá sigurmarkið á 90.mínútu Þeir gerast ekki sætari sigrarnir og líka rétt fyrr Verslunaramannahelgi, fá sigur inn í helgina. En þetta telur ekki að hann fari í slána þó að hann fari tvisvar."
Fjölnir er eftir leikinn í fimmta sætinu, sex stigum á eftir þremur efstu liðunum.
,,Þetta var svolítill úrslitaleikur ef við ætluðum að elta. Þetta var eitt stig og við verðum bara að halda áfram, við gefumst ekki upp núna. Við förum ekkert að gráta strax. Við höldum áfram, reynum að elta, vinnum okkar leiki og sjáum hvað það skilar okkur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























