,,Ólsararnir eru með mjög gott lið. Við vissum að þetta er skipulagt og við urðum að brjóta þá niður," sagði Gunnar Már Guðmundsson miðjumaður FH eftir 3-1 sigur liðsins á Víkingi Ólafsvík í undanúrslitum VISA-bikarsins í kvöld.
Gunnar Már kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik þegar Jón Ragnar Jónsson meiddist. Gunnar Már er að koma til baka eftir meiðsli en hann skoraði fyrsta mark FH í kvöld.
,,Maður er að reyna að komast í gang eftir 100% meiðsli. Maður finnur stigsmun á hverri viku og þetta fer að verða gott."
KR og Fram mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun en hverjir eru óskamótherjar Gunnars í úrslitaleiknum? ,,Er ekki FH - KR helvíti stór leikur," sagði Gunnar að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















