,,Það er frábært að fara í úrslitaleik í bikarnum. Þetta er stærsti leikur ársins og við erum mjög ánægðir," sagði Gunnleifur Gunnleifsson markvörður FH eftir 3-1 sigri liðsins á Víkingi Ólafsvík í undanúrslitum VISA-bikarsins í kvöld.
,,Heimir (Guðjónsson, þjálfari FH), var búinn að segja okkur fullt um þetta lið og þeir spiluðu nákvæmlega eins og við bjuggumst við. Þetta var erfitt það er alltaf þannig í fótbolta."
,,FH stefnir á að taka hvern einasta titil sem er í boði og það er engin breyting á því varandi bikarinn. Við erum ánægðir með að vera komnir í bikarúrslitaleikinn og ætlum okkur stærri hluti."
Fram og KR mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun en hvoru liðinu vill Gunnleifur mæta í úrslitunum? ,,Mér er nákvæmlega sama. HK," sagði Gunnleifur léttur í bragði.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























