,,Sáttur og ekki sáttur, við vorum komnir með þrjú stig í hendi, en þetta er svosem ekki í hendi fyrr en þetta er búið. En úr því sem komið var tek ég þetta stig á útivelli á móti erfiðu HK liði," sagði Ásmundur Guðni Haraldsson þjálfari Gróttu eftir 2-2 jafntefli gegn HK í kvöld.
,,Ég er mjög sáttur við okkar frammistöðu heilt yfir. Kaflaskipt, jú við hefðum getað komið okkur í þægilega stöðu í fyrri hálfleik, við hefðum getað klárað leikinn í 3-1 á tímabili í seinni hálfleik."
,,Við skorum 2-1 og dettum óhjákvæmilega til baka. Það er alltaf þannig, það gerist alltaf eitthvað og menn taka alltaf skrefið til baka og hinir taka skrefið uppávið. Með smá klókindum og heppni hefðum við getað náð 3-1 og þá hefði þessi leikur verið búinn."
Nánar er rætt við Ásmund í sjónvarpinu að ofan en þar tjáir hann sig meðal annars um öskur sem leikmenn Gróttu koma með fyrir leiki.
























