Heimild: Sky
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United hrósar eigendum félagsins, Glazer fjölskyldunni.
Glazer fjölskyldan er ekki vel liðinn meðal stuðningsmanna félagsins en Glazer hefur sett félagið í miklar skuldir.
,,Skuldirnar hafa komið eftir að félagið var keypt, þú veist það að þegar þú ferð í viðskipti er það yfirleit keypt með láni," sagði Ferguson.
,,Af því að þetta er fótboltafélag koma fleiri slæmar fréttir frá fréttamönnum og stuðningsmönnum."
,,Þegar Manchester United fór á hlutabréfamarkað var alltaf líklegt að félagið yrði keypt."
,,Þegar Glazer fjölskyldan kom þá er ósangjarnt að gagnrýna þá því hver sem er hefði getað keypt félagið."
,,Þeir hafa gert vel, þeir styðja mig, leikmennina og þeir hafa aldrei neitað mér um peninga fyrir leikmanni."
,,Hvað get ég gert annað en að halda áfram þegar þeir leyfa mér að gera það sem ér vil, ég hef ekki yfir neinu að kvarta."



