- TM styrkir umfjöllun Fótbolta.net um kvennaknattspyrnu
Guðríður Hannesdóttir hefur verið lánuð frá Stjörnunni til Hauka út þessa leiktíð en hún er þegar komin með leikheimild með Haukum.
Guðríður Hannesdóttir sem er 25 ára gömul hefur ekkert getað leikið með Stjörnunni í Pepsi-deildinni í sumar en hafði átt fast sæti í byrjunarliðinu undanfarin ár.
Hún heldur nú til Hauka þar sem hún mun leika lokaumferðirnar í deildinni en hún er annar leikmaðurinn sem Stjarnan lánar frá sér í félagaskiptaglugganum í júlí, áður hafði Edda María Birgisdóttir farið til ÍBV.
Guðríður hóf feril sinn í meistaraflokki með Breiðablik árið 2003 en hefur frá árinu 2005 leikið með Stjörnunni og átt fast sæti í liðinu.
Hún á að baki 93 meistaraflokksleiki og hefur skorað í þeim 3 mörk.