Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 29. júlí 2010 12:02
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Maradona ósáttur: Grondona laug og Bilardo sveik mig
Diego Maradona hefur sakað argentínska knattspyrnusambandið um lyga og svik eftir að samningur hans sem landsliðsþjálfara var ekki endurnýjaður.

Maradona er sérstaklega ósáttur út í Carlos Bilardo framkvæmdastjóra og Julio Grondona formann argentínska knattspyrnusambandsins.

,,Grondona laug að mér og Bilardo sveik mig," sagði Maradona í gærkvöldi.

,,Þegar við vorum svekktir (eftir 4-0 tap gegn Þjóðverjum á HM) þá var Bilardo að vinna að því að láta reka mig."

,,Grondona sagði í búningsherberginu, eftir að við duttum út á HM í Suður-Afríku, að hann væri ánægður með mitt starf og vildi að ég myndi halda áfram."

,,Þegar við komum aftur til Argentínu tóku hlutirnir óvænta stefnu og á mánudag hitti ég Grondona."

,,Eftir fimm mínútur sagði hann að hann vildi að ég myndi halda áfram en sjö menn úr starfsliði mínu gætu ekki verið áfram. Þegar hann sagði mér þetta þá var hann að segja að hann vildi ekki að ég myndi halda áfram í starfinu."

,,Hann veit að það er ómögulegt fyrir mig að vera áfram þjálfari án samstarfsfélaga minna."

Slapp
banner