Fagn Stjörnunnar gegn Fylki heldur áfram að vekja athygli og er komið á forsíðu á msn.com.
Fagnið hefur farið eins og eldur um sinu eftir að liðið vann Fylki 2-1.
Þá kom fagnið á einni stærstu sjónvarpstöð í Bandaríkjunum, CBS.
Ljóst er að Stjörnumenn eru að fá sínar 15. mínútur af frægð út um allan heim.
Búið er að horfa 4,5 milljón sinnum á fagnið á youtube.
Hér má sjá myndband af fagninu á YouTube



