fim 29.júl 2010 17:00 Magnús Már Einarsson,
Leikmaður umf 1.d.: Gríðarleg hugarfarsbreyting hjá leikmönnum
Gunnar og Helgi Sigurðsson í leiknum í gær.
Mynd: Brandur
Gunnar í sigurleiknum gegn Víkingi.
Mynd: Brandur
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Gunnar Einarsson var frábær í vörn Leiknis þegar liðið lagði Víking R. 2-0 í toppbaráttuslag í fyrstu deild karla í gærkvöldi. Gunnar er leikmaður fjórtándu umferðar hér á Fótbolta.net.

Gunnar Einarsson
Aldur: 34 ára
Leikir með Leikni R.: 29 og 1 mark
Fyrri félög: Valur, KR, Roda, Venlo, MVV, Brentford
Lið á Englandi: Arsenal
Uppháhald knattspyrnumaður: Ronald Koeman
,,Það kemur alltaf á óvart að svona tilnefningu. Það eru yfirleitt framherjar sem skora mörk sem fá þessa viðurkenningu, við varnarmennirnir fáum minnstu athyglina en það er alltaf gaman að fá svona tilnefningu," sagði Gunnar við Fótbolta.net i dag.

,,Þetta var mjög flottur leikur hjá Leikni í gær. Samheldnin og ákveðnin í leik okkar skóp þennan sigur. Það hefði verið gaman að skora þriðja markið, Fannar klúðraði víti með HM-töktunum sínum en hann lærir vonandi af því."

Gunnar átti í höggi við Helga Sigurðsson í leiknum í gær en þeir léku saman hjá Val á sínum tíma.

,,Það var erfitt að eiga við hann. Hann hleypur mikið strákurinn og veit hvar hann á að hlaupa og hvar hann á að standa en reynsla mín hjálpaði mér kannski. Hann er óútreiknanlegur sóknarmaður og líklegur til alls. Maður þurfti að vera á tánum til að eiga við hann en það hjálpaði mér að ég spilaði með honum í tvö ár."

Eftir sigurinn í gær eru Þór, Víkingur R: og Leiknir öll með 28 stig í þremur efstu sætunum.

,,Það er mikilvægt að hafa náð sigri í gær. Það er mikið eftir af mótinu og við erum alveg klárir í slaginn. Það er mikill meðbyr með klúbbnum og vel hlúð að strákunum. Leikmennirnir í Leikni hafa tekið gríðarlegum framförum og hafa sýnt mikinn dugnað og metnað á undirbúningstímabilinu. Þeir vilja ná árangri og það er að skila sér."

,,Það eru ekki margir klúbbar á landinu sem geta staðið sig af því að vera með svona marga uppalda leikmenn á góðum aldri. Við strákarnir höfum sett okkur markmið og við höldum því fyrir okkur en hvernig svo sem er litið á hlutina þá er ég mjög stoltur af klúbbnum og leikmönnum."


Gunnar kom til Leiknis í fyrra og hefur auk þess að spila verið aðstoðarþjálfari hjá Sigursteini Gíslasyni.

,,Þegar við Steini tókum að liðinu í fyrra voru ákveðnir hlutir sem við vildum laga. Við sáum alltaf að getan var til staðar hjá þessum strákum en það þurfti hugarfarsbreytingu hjá þessum leikmönnum hvort sem það var utan eða innan vallar. Við erum jafnt og þétt búnir að vera að vinna í þessum málum, bæta þessa litlu hluti um 10% frekar en að fókusera á eitt vandamál og bæta það."

,,Það er gríðarleg hugarfarsbreyting hjá leikmönnum í Leikni í dag hvernig þeir hlúa að sér þegar þeir eru utan vallar. Það er komið sigurhugarfar í þá og það er að skila sér enda eru þeir mjög meðtækilegir fyrir ábendingum. Þú ert með Sigurstein Gíslason sem aðalþjálfara, þú finnur ekki meiri sigurvegara á landinu og hann smitar út frá sér."


Gunnar segir að nokkrir leikmenn Leiknis hafi vakið athygli hjá félögum í Pepsi-deildinni.

,,Maður hefur heyrt af því að það eru nokkur lið að horfa hýrum augum á nokkra leikmenn hjá okkur og það kemur mér ekkert á óvart. Það er hins vegar ljóst að við ætlum að halda þessum mannskap sem við erum með og það fer enginn frá okkur."

Félagaskiptaglugginn lokar um helgina en Gunnar býst ekki við að Leiknismenn styrki sig fyrir þann tíma.

,,Við höfum aðeins verið að skoða í kringum okkur en við erum með 16-18 sterka leikmenn og það er ekkert stress fyrir okkur ef að enginn kemur. Við klárum þetta þessi hópur en það er aldrei að vita," sagði Gunnar að lokum.

Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 13. umferðar: Kristján Ari Halldórsson (ÍR)
Leikmaður 12. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)

Nýjustu fréttirnar