Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 29. júlí 2010 16:28
Hörður Snævar Jónsson
Guðni Rúnar í Völsung - Ætlar að loka hringnum
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Guðni Rúnar Helgason aðstoðarþjálfari Völsungs hefur skipt yfir í liðið.

Hann sagði í samtali við Fótbolta.net að hann ætti ekki von á því að spila mikið en hann ætlaði að loka hringnum.

,,Ég á nú ekki von á því að spila mikið, kannski fimm mínútur til að loka hringnum," sagði Guðni Rúnar í samtali við Fótbolta.net.

Guðni Rúnar þekkir til með Völsungi eftir að hafa leikið með liðinu í nokkur ár á sínum tíma en hann var síðast með liðinu árið 1998.

Á ferlinum hefur Guðni einnig leikið með KR, Val, Fylki og ÍBV hér á landi, Start og Hönefoss í Noregi auk þess sem að hann var á mála hjá Sunderland á Englandi á sínum tíma.

Hann lék síðustu tvö tímabil með Stjörnunni en fór frá félaginu eftir síðustu leiktíð.
Slapp
banner
banner