Heimild: Sky
Ronaldinho, leikmaður AC Milan gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að hafa meiðst í vöðva á æfingu í gær.
Þessi fyrrum knattspyrnumaður ársins mun fara í frekari skoðanir á næstu dögum og þá kemur í ljós hversu alvarleg meiðslin eru.
Brasilíumaðurinn knái mun ekki leika með AC Milan á Emirates Cup en Milan á leik gegn Arsenal á laugardaginn.
,,Ronaldinho kvartaði undan sársauka í vöðva eftir síðari æfingu gærdagsins," segir í yfirlýsingu frá Milan.
,,Brasilíumaðurinn mun fara í frekari skoðanir í kvöld."



