Ferguson ánægður með Javier Hernandez
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United segir að hraði Javier Hernandez geti nýst liðinu vel.
Hernandez spilaði sinn fyrsta leik fyrir Manchester United í gær þegar liðið sigraði úrvalslið MLS deildarinnar með fimm mörkum gegn tveimur.
Þessi 22 ára gamli framherji kom inná skoraði fimmta mark United. Þá skoraði Federico Macheda tvö mörk og Darron Gibson og Tom Cleverley gerðu eitt mark.
,,Varnarmenn hafa alltaf áhyggjur af því að hraður leikmaður geti komist í svæðið á bakvið þá," sagði Ferguson.
,,Þegar þú sérð markið hans (Hernandez) þá sérðu hraða hans. Tímasetning á hlaupinu og þegar hann mætir boltanum. Hann mun valda usla í vörn andstæðinganna, það liggur enginn vafi á því."