Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 29. júlí 2010 13:57
Karitas Þórarinsdóttir
Bandaríkin: Hólmfríður sá rautt
Kvenaboltinn
Hólmfríður
Hólmfríður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólfríður Magnúsdóttir og lið hennar Philadelphia Independence sigruðu í gærkveldi lið Chicago Red Stars með þremur mörkum gegn engu.

Philadelphia Independence 3 – 0 Chicago Red Stars
1-0 Amy Rodriguez (’12)
2-0 Amy Rodriguez (’25)
3-0 Caroline Seger (’46)

Hólmfríður var að spila sinn þriðja leik í röð sem vinstri bakvörður.

Heimastúlkur byrjuðu leikinn betur og á 12. mínútu skoraði senterinn knái Amy Rodriguez og hún var aftur að verki á 25. mínútu þegar hún skoraði sitt annað mark.

Rodriguez var ekki hætt því þegar seinni hálfleikur var ný byrjaður lagði hún upp þriðja mark liðsins þegar hún gaf boltann á Caroline Seger sem skoraði örugglega.

Fátt annað markvert gerðist í leiknum nema þegar komið var að loka mínútu leiksins að þá fékk Hólmfríður að líta rauða spjaldið fyrir hættulega tæklingu.

Indiependence stúlkur kláruðu leikin einum færri og héltu hreinu enda lítið eftir að leiknum.

Næsti leikur er svo á miðvikudaginn næstkomandi og þá verður Hólmfríður væntanlega í banni.
Slapp
banner
banner