KR 4 - 0 Fram
1-0 Óskar Örn Hauksson
2-0 Grétar Sigfinnur Sigurðsson
3-0 Björgólfur Takefusa
4-0 Björgólfur Takefusa
1-0 Óskar Örn Hauksson
2-0 Grétar Sigfinnur Sigurðsson
3-0 Björgólfur Takefusa
4-0 Björgólfur Takefusa
90. mín: Þá er leiknum lokið með afgerandi sigri KR-inga sem eru þar með komnir í úrslitaleikinn í 16. sinn þar sem þeir mæta Íslandsmeisturum FH 14. Ágúst.
80. mín: MARK Björgólfur skorar sitt annað mark í leiknum eftir óvenju létt leikinn dans Baldurs Sigurðssonar framhjá varnarmönnum Framara. Baldur renndi síðan boltanum fyrir markið þar sem Björgólfur var réttur maður á réttum stað.
71. mín: MARK Björgólfur Takefusa er að koma heimamönnum í þægilega stöðu með marki eftir aukaspyrnu. Óskar Örn renndi boltanum aftur fyrir sig úr spyrnunni þar sem Björgólfur var sem þrumaði boltanum í gegnu teiginn og í fjærhornið.
65. mín: Kjartan Henry sem er nýkominn inn á sem varamaður átti skot að marki fyrir utan teig sem fór rétt framhjá nærstönginni.
59. mín: MARK Grétar Sigfinnur eykur forystu heimamanna með skalla eftir hornspyrnu Óskars Arnar.
52. mín: Enn hætta við Fram-markið. Guðjón Baldvinsson sendi háan bolta inn á teig þar sem Baldur Sigurðsson skallaði boltann rétt framhjá markinu.
48. mín: Fyrsta færi síðari hálfleiks er í eigu heimamanna. Skúli Jón sendi langa sendingu á fjærstöng þar sem Guðjón Baldvinsson stóð en skot hans fór framhjá.
45. mín: Hálfleikur. KR-ingar hafa tekið öll völd á vellinum eftir brottvísunina svo Þorvaldur Örlygsson verður að vanda orð sín vel til að blása lífi í sína leikmenn.
40. mín: MARK KR-ingar hafa verið að sækja í sig veðrið eftir brottvísunina og eitthvað varð undan að láta. KR-ingar sóttu hratt upp völlinn, Skúli Jón sótti upp að endamörkum og renndi boltanum fyrir markið þar sem Óskar Örn var mættur og náði að reka fótinn í boltann sem rúllaði í nær hornið.
36. mín: Hætta við Fram markið. Boltinn barst inn í teig gestanna þar sem Jón Orri lenti í vandræðum með að koma boltanum frá sem endaði með því að Baldur Sigurðsson náði boltanum og renndi honum á Guðjón sem þurfti að teigja sig og setti boltann í hliðarnetið. Framarar heppnir eftir klaufalegan varnaleik.
29. mín: Rautt spjald Boltinn barst hátt inn fyrir vörn Framara og upphófs þá kapphlaup Kristjáns Haukssonar og Guðjóns Baldvinssonar sem endar með því að Guðjón náði að pota boltanum áfram en Kristján sparkar í tómt og við það fellur Guðjón sem var að sleppa í gegn og Gunnar Jarl átti ekki um annað að velja en að vísa honum af leikvelli.
25. mín: Hörku skot frá Viktori Bjarka hafði viðkomu í Framara og fór boltinn rétt yfir markið. KR-ingar fengu tvær hornspyrnur í kjölfarið sem ekkert varð úr.
19. mín: Fyrsta skot KR-inga átti Bjarni Guðjónsson eftir ágæta sókn en skot hans með vinstri færi fór framhjá markinu.
KR-ingar eru að komast inn í leikinn en liðin hafa skipst á að sækja án þess þó að skapa sér nein færi.
10. mín: Jón Orri Ólafsson kemur inn á fyrir Sam Tillen.
6. mín: Almarr Ormarsson fékk sendningu inn fyrir vörn KR en Lars Ivar bjargaði með góðu úthlaupi. Framarar hafa byrjað leikinn að meiri krafti og náð að skapa sér tvö tækifæri.
3. mín: Fyrsta skot leiksins átti Jón Guðni Fjóluson eftir að Framarar höfðu fengið aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Spyrnan var slök en Jón Guðni náði frákastinu eftir klafs í teignum en skaut hátt yfir.
1. mín: Þá hefur Bubbi Morthens lokið við að þenja raddböndin í hátalarkerfinu og leikurinn getur hafist. Það eru KR-ingar sem hefja leik og sækja að félagsheimili sínu og sækja undan sunnan golu, ef mér skjátlast ekki.
19:00 Komiði sælir kæru lesendur og verið velkomnir í beina textalýsingu frá leik KR og Fram héðan úr Frostaskjólinu í undanúrslitum Visa-bikarsins. Það styttist í leik en liðin voru að ljúka við upphitun og eru væntanleg vonbráðar. Áhorfendur eru farnir að flykkjast á völlinn enda má búast við fjörugum leik ef eitthvað er að marka fyrri leik liðanna í sumar sem endaði með dramatískum sigri KR-inga.
Byrjunarlið liðanna eru eftirfarandi:
KR (4-3-3): Lars Moldsked, Grétar Sigfinnur Sigurðsson, Mark Rutkers, Skúli Jón Friðgeirsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson, Bjarni Guðjónsson, Viktor Bjarki Arnarsson, Baldur Sigurðsson, Guðjón Baldvinsson, Óskar Örn Hauksson, Björgólfur Takefusa.
Fram (4-5-1): Hannes Þór Halldórsson, Kristján Hauksson, Jón Guðni Fjóluson, Daði Guðmundsson, Sam Tillen, Jón Gunnar Eysteinsson, Halldór Hermann Jónsson, Almarr Ormarsson, Tómas Leifsson, Joe Tillen, Hjálmar Þórarinsson.
Dómarar eru svo:
Gunnar Jarl Jónsson
Ólafur Ingvar Guðfinnson
Frosti Viðar Gunnarson.



