Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 29. júlí 2010 19:46
Magnús Már Einarsson
Henrik Bödker í Víði Garði (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Víðir Garði úr annarri deild hefur samið við danska markvörðinn Henrik Bödker.

Bödker hefur í sumar verið markvarðarþjálfari hjá Stjörnunni en hann lék síðast með Þrótti á síðasta tímabili þegar hann lék sjö leiki í Pepsi-deildinni með liðinu.

Bödker kom fyrst hingað til lands árið 2007 þegar hann lék síðari hluta móts með ÍBV.

Hann lék síðan með Hetti í annarri deildinni árið 2008 áður en hann fór til Þróttara.

Bödker kemur til með að taka við markvarðarstöðuna hjá Víði af Bojan Vranic sem hefur varið mark liðsins lengst af í sumar.

Vranic yfirgaf Víði á dögunum líkt og Darko Milojkovic sem var líka sendur heim.
Slapp
banner
banner