Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður AZ Alkmaar var á skotskónum er liðið vann IFK Gautaborg í Evrópudeildinni í kvöld.
Jóhann Berg var að spila sinn fyrsta mótsleik fyrir AZ og var í byrjunarliðinu.
AZ vann 2-0 sigur á heimavelli en þetta var fyrri leikurinn í viðureign liðanna.
Ragnar Klavan kom AZ yfir þegar sjö mínútur voru búnar af síðari hálfleik.
Jóhann skoraði svo annað mark liðsins þremur mínútum síðar.
Hann fékk þá boltann fyrir utan teig og setti boltann yfir markvörð Gautaborg og í stöng og inn.
Kolbeinn Sigþórsson leikmaður AZ var allan tímann á varamannabekk liðsins.
Hjálmar Jónsson, Ragnar Sigurðsson og Theodór Elmar Bjarnason komu allir við sögu hjá Gautaborg.



