Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 07:04
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Macheda: Held að þetta gæti orðið árið mitt
Framherjinn ungi Federico Macheda vonast eftir að fá fleiri tækifæri með aðalliði Manchester United á komandi tímabili.

Þessi 18 ára gamli Ítali skaust fram á sjónarsviðið vorið 2009 en á síðustu leiktíð kom hann síðan lítið við sögu.

Macheda skoraði tvívegis í sigri United á draumliði úr MLS deildinni í fyrradag og hann er ákveðinn í að sanna sig á næstunni.

,,Ég er tilbúinn og ég vona að stjórinn velji mig í liðið í fleiri leikjum. Ég held að þetta gæti orðið árið mitt," sagði Macheda.

,,Við erum að færast nær byrjun tímabilsins svo ég var mjög ánægður með þessi tvö mörk. Ég verð að halda áfram að standa mig vel. Ég verð að nýta hvert tækifæri sem stjórinn gefur mér."

,,Ég lenti í miklum meiðslum á síðsta tímabili, ég var frá í næstum fimm mánuði og ég gat ekki sýnt hvað í mér býr en á þessu tímabili vonast ég til að fá tækifæri til að sýna hvað ég get gert."

Slapp