Ívar Björnsson var skiljanlega ekki sá allra hressasti þegar Fótbolti.net fékk hann í viðtal eftir 4-0 tap Fram gegn KR í undanúrslitum VISA-bikarsins.
Framararnir byrjuðu leikinn betur heldur en heimamenn í Vesturbænum en vendipunktur leiksins átti sér klárlega stað eftir tæpan hálftíma þegar þeir bláklæddu misstu mann af velli. Þá fékk Kristján Hauksson sitt annað rauða spjald á tímabilinu fyrir brot á Guðjóni Baldvinssyni þegar sá síðarnefndi var kominn einn í gegn, en Ívari fannst Guðjón að vísu vera rangstæður.
„Ég veit ekki hvort þetta var sanngjarnt. Ég stóð í línu við dómarann og mér fannst hann vera rangstæður. En ef þetta var ekki rangstaða verður hann náttúrulega að henda honum út af, ef þetta er brot það er að segja“ sagði Ívar Björnsson eftir leikinn.
„Mér fannst við aðallega vera að fá á okkur klaufaleg mörk, sérstaklega úr föstum leikatriðum. Við vorum bara ekki fókuseraðir.“
Framararnir voru heillengi inni í klefa eftir leikinn og var Ívar spurður hvort að leikmenn liðsins hefðu fengið einhvern skell frá Þorvaldi Örlygssyni þjálfara eftir leikinn.
„Það er svosum búið að niðurlægja mann nógu mikið í 4-0 tapi, ég veit ekki hvað ég á að segja, þetta var bara niðurlæging,“ sagði Ívar, sem vildi ekki tjá sig meira um það sem var í gangi inni í klefa.
Viðtalið við hundsvekktan Ívar Björnsson má sjá í heild sinni í myndbandinu hér að ofan.

























