Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 10:05
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Hodgson hrósar ungu strákunum
Roy Hodgson knattspyrnustjóri Liverpool var ánægður með ungu strákana í liðinu eftir 2-0 sigur liðsins á Rabotnicki í Evrópudeildinni í gærkvöldi.

Rauði herinn er kominn með annan fótinn í næstu umferð eftir sigurinn í Makedóníu þar sem David N'Gog skoraði bæði mörkin. Sigurinn var sérstaklega góður í ljósi þess að lykilmenn á borð við Steven Gerrard, Fernando Torres, Joe Cole, Pepe Reina og fleiri voru ekki með.

,,Ég er mjög sáttur. Þetta var leikur sem hefði getað orðið mjög erfiður fyrir okkur," sagði Hodgson.

,,Það voru margir áhorfendur þarna og sumir strákanna sem spiluðu eru ekki vanir svona miklum áhorfendafjölda."

,,Við vorum án 13 leikmanna í kvöld en blandan á ungum og reyndari leikmönnum stóð algerlega undir væntingum."

,,Ég var virkilega ánægður með spilamennsku allra leikmannanna og við getum farið inn í seinni leikinn á Anfield með þægilega forystu."

Slapp
banner