Leiknismenn hafa birt á heimasíðu sinni svipmyndir úr 2-0 sigri liðsins á Víkingi R. í fyrrakvöld.
Þar má meðal annars sjá mörkin sem Kjartan Andri Baldvinsson og Kristján Páll Jónsson skoruðu í leiknum.
Að auki má sjá vítaspyrnu sem Fannar Þór Arnarsson misnotaði undir lok leiksins.
Fannar ætlaði þá að vera svellkaldur og vippa boltanum í mitt markið en Magnús Þormar, markvörður Víkings, las hann eins og opna bók eins og sjá má aftast í myndbandinu.
Smelltu hér til að sjá myndbandið á heimasíðu Leiknis



