Rúnar Kristinsson þjálfari KR var að vonum ánægður með 4-0 sigur sinna manna gegn Fram í undanúrslitum VISA-bikarsins. Fram missti mann af velli eftir hálftíma leik og gengu Vesturbæingarnir á lagið í kjölfarið.
„Eftir að Framarar misstu mann út af þá náðum við öllum tökum á vellinum og skoruðum gott mark fyrir hlé,“ sagði Rúnar við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Þegar þú ert í bikarkeppninni, sérstaklega í undanúrslitum, þá getur allt gerst þó svo að við séum manni fleiri, þannig að menn þurftu að halda einbeitningunni út leikinn og gerðu það.“
„Við eigum fullt af góðum fótboltamönnum og ef við fáum þetta mikið pláss eins og þegar þeir eru einum færri, þá nýtum við það mjög vel. Við sáum bara til þess að það yrðu engir snúningar í þessum leik og kláruðum þetta eins og menn, öruggur sigur á endanum.“
„Það er erfitt að segja til um, við erum allavega ánægðir með það sem við erum búnir að gera í síðustu leikjum en nú einbeitum við okkur bara að næsta leik í deildinni, sem er Stjarnan.“
Viðtalið við Rúnar í heild sinni má sjá hér að ofan en þar ræðir hann meðal annars um úrslitaleikinn gegn FH.
























