Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 11:32
Hörður Snævar Jónsson
Jóhann Berg: Ekkert annað í stöðunni en að láta vaða
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður AZ Alkmaar skoraði í sínum fyrsta alvöru leik fyrir félagið í gær.

Jóhann gekk í raðir AZ í janúar 2008 og hafði veirð að fá tækifæri með liðinu nú á undirbúningstímabilinu.

Hann spilaði svo sinn fyrsta mótsleik gegn IFK Gautaborg í gær er liðið vann 2-0 í fyrri leik liðanna í Evrópudeildinni.

,,Þetta var klárlega alger draumabyrjun fyrir mig. Það er ekki slæmt að skora í sínum fyrsta alvöru leik fyrir AZ," sagði Jóhann í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn í gær.

,,Ég leit strax upp þegar ég fékk boltann og sá hversu framarlega markvörðurinn var, það var ekkert annað í stöðunni en að láta vaða og það var ansi sætt að sjá hann fara í stöng og inn."

,,Þetta er líklega með flottari mörkum sem ég hef skorað en án nokkurs vafa það mikilvægatsa, þetta var ansi mikilvægt mark."


Þessi 2-0 sigur voru góð úrslit fyrir AZ fyrir seinni leikinn sem er í Svíþjóð næsta fimmtudag.

,,Þetta voru mjög góð úrslit fyrir seinni leikinn, þeir settu upp í mikinn varnarleik og að ná inn tveimur mörkum er gott. Þetta er alls ekki búið, það er bara hálfleikur og við þurfum að vera á tánum í seinni leiknum."

Gertjan Verbeek tók við AZ í sumar og er að yngja liðið upp.

,,Mér lýst bara nokkuð vel á nýja þjálfarann, hann er tilbúinn að gefa mönnum séns sem eru að standa sig á æfingum og í æfingarleikjum sem er mjög jákvætt. Þá er hann einnig tilbúinn að treysta á unga leikmenn sem er ekkert nema gott," sagði Jóhann að lokum í samtali við Fótbolta.net.

Smelltu hér til að sjá myndband af marki Jóhanns
Slapp
banner
banner
banner
banner