Úrslitaleikir VISA-bikarsins í karla og kvennaflokki fara fram um þar næstu helgi en leikirnir skrarast á við fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Snemma á þessu ári var tekin ákvörðun um að færa bikarúrslitaleikina sem hingað til hafa verið síðustu leikir ársins í kulda um mánaðarmótin september / október, og láta þess í stað spila þá á laugardegi í ágúst nálægt Menningarnótt.
Menningarnótt er 21. ágúst en þann dag leikur kvennalandsliðið mikilvægan leik gegn Frökkum á Laugardalsvelli. Því var ákveðið að leikirnir færu fram 14. og 15. ágúst næstkomandi.
Það eru sömu dagar og enska úrvalsdeildin hefur göngu sína að nýju eftir sumarfrí. Laugardaginn 14. ágúst mætast FH og KR í úrslitaleik VISA-bikars karla en leikurinn hefst 14:00, á sama tíma og 6 leikir í ensku úrvalsdeildinni. Þó er kostur að ekkert af stóru liðunum á Englandi eiga leik þá.
Á sunnudeginum 15. ágúst mætast Stjarnan og Valur í kvennaflokki klukkan 16:00 en klukkan 15:00 hefst stórleikur Liverpool og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni svo búast má við að þar hafi enska deildin áhrif á aðsókn.
Á mánudeginum 16. ágúst á stórlið Manchester United sinn fyrsta leik gegn Newcastle en sá leikur skarast svo á við fjóra leiki í Pepsi-deildinni.

Laugardagurinn 14. ágúst:
11:45 Tottenham - Man City
14:00 FH - KR (Bikarúrslit karla)
14:00 Aston Villa - West Ham
14:00 Blackburn - Everton
14:00 Bolton - Fulham
14:00 Sunderland - Birmingham
14:00 Wigan - Blackpool
14:00 Wolves - Stoke
17:30 Chelsea - WBA
Sunnudagurinn 15. ágúst:
15:00 Liverpool - Arsenal
16:00 Stjarnan - Valur (Bikarúrslit kvenna)
Mánudagurinn 16. ágúst:
19:00 Manchester United - Newcastle
19:15 Selfoss - Keflavík
19:15 Fylkir - Valur
19:15 Breiðablik - ÍBV
19:15 Haukar - Stjarnan