fös 30.júl 2010 10:47 Hafliði Breiðfjörð,
Írskur framherji í Val - König hættur (Staðfest)
Danni König er hættur hjá Val sem hefur fengið Íra til liðs við sig.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Valur hefur fengið írska framherjann Diarmuid O'Caroll til liðs við sig en hann er 23 ára gamall og hefur verið félagslaus síðan í maí.

Á sama tíma hættir dansk/spænski framherjinn Danni König hjá félaginu og gengur til liðs við Brønshøj í heimalandinu en þar hafði hann leikið áður.

,,Hann hafði klásúlu um að ef það kæmi eitthvað þá gæti hann farið og það kom á versta tíma í gær," sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari Vals við Fótbolta.net í dag.

,,Við höfðum ekki langan tíma til að bregðast við en höfðum heyrt af þessum Íra. Hann hafði meðal annars verið með Kjartani (Henry Finnbogasyni) og Theodór Elmari (Bjarnasyni) hjá Celtic."

,,Þegar við leituðum eftir umsögnum um hann voru þau mjög jákvæð og hann var klár til að koma,"
bætti Gunnlaugur við en hann átti ekki von á að félagið geri meira áður en félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld.

Diarmuid O'Caroll var á mála hjá Celtic árunum 2006-2008 án þess að spila með aðalliðinu. Hann var lánaður til Ross County árið 2007 og skoraði þá tvö mörk í 15 leikjum. 2008-2009 skoraði hann 5 mörk í 29 leikjum með Morecambe og á síðustu leiktíð lék hann 27 leiki og skoraði 4 mörk með Airdrie United en varð að hætta hjá félaginu í maí vegna niðurskurðar.

Nýjustu fréttirnar