- TM styrkir umfjöllun Fótbolta.net um kvennaknattspyrnu
Valur hefur lánað Þrótti markvörðinn Ásu Dögg Aðalsteinsdóttur út tímabilið en hún kemur til með að styrkja Þrótt í lokabaráttu 1. deildar og umspili um sæti í efstu deild.
Ása Dögg hafði farið til Grindavíkur á láni annað árið í röð í vor en meiddist svo félagið varð að fá annan markvörð. Hún vermdi svo varamannabekkinn þar eftir að hún var klár að nýju og sneri svo til Vals að nýju.
Þar var hún varamaður þar til hún hóf æfingar með Þrótti fyrr í mánuðinum og hefur nú fengið félagaskipti þangað. Á bekknum hjá Val er Þórdís María Aikman sem kom til félagsins frá Þrótti í vetur.
Þróttur hefur þegar tryggt sér sæti í umspili um sæti í Pepsi-deildinni en liðið hefur aðeins fengið á sig fjögur mörk í deildinni í sumar.