fös 30.júl 2010 11:08 Hafliði Breiðfjörð,
Tvíburabræðurnir Geir og Kolbeinn í Völsung (Staðfest)
Geir Kristinsson fer með tvíburabróður sínum í Völsung.
Mynd: Fótbolti.net-Vilbogi M Einarsson
Fjölnir hefur lánað tvíburabræðurna Geir og Kolbein Kristinssyni til Völsungs út þessa leiktíð.

Geir hafði leikið tíu leiki með Fjölni í 1. deildinni í sumar auk tveggja bikarleikja en hann á að baki 24 leiki með liðinu.

Kolbeinn hafði ekkert leikið með Fjölni í sumar en hafði verið hjá Birninum, sem er varalið Fjölnis í 3. deildinni, í sumar og leikið þar 12 leiki og skorað 2 mörk. Hann á að baki sex leiki með meistaraflokki Fjölnis.

Báðir hafa þeir Geir og Kolbeinn leikið sem miðverðir eða miðjumenn með liðum Fjölnis.

Völsungur er í 6. sæti 2. deildar karla með 19 stig úr 13 leikjum.

Nýjustu fréttirnar