Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 13:36
Hafliði Breiðfjörð
Ruth Þórðar Þórðardóttir lánuð í Þrótt (Staðfest)
Kvenaboltinn
Ruth Þórðar Þórðardóttir leikur með Þrótti út tímabilið.
Ruth Þórðar Þórðardóttir leikur með Þrótti út tímabilið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir hefur lánað framherjann Ruth Þórðar Þórðardóttur í Þrótt út tímabilið og framlengdi í leiðinni samning sinn við Fylki til tveggja ára en fyrri samningur átti að renna út í desember á þessu ári og rennur nú út í desember 2012.

Ruth hefur allan sinn feril leikið með Fylki þar sem hún hefur leikið 6 leiki í deild og einn í bikar í sumar og hefur skorað tvö mörk.

Hún hefur ekki átt sæti í byrjunarliðinu hjá Fylki og hefur nú verið lánuð til Þróttar sem er að styrkja sig fyrir umspilið um sæti í Pepsi-deildinni á komandi leiktíð.

Hún hóf meistaraflokksferil sinn með Fylki sumarið 2004 og hefur á þeim tíma skorað 32 mörk í 98 leikjum.

Eins og við greindum frá fyrr í dag hefur Þróttur einnig fengið markvörðinn Ásu Dögg Aðalsteinsdóttur á láni frá Val.
Slapp
banner
banner