KR hefur fengið Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttur og Guðlaugu Söru Guðmundsdóttur aftur til liðs við sig úr láni.
Dagmar Mýrdal var á láni hjá FH frá í maí og lék með liðinu 8 leiki í Pepsi-deildinni og einn í VISA-bikarnum. Hún hefur í heildina leikið 22 leiki með meistaraflokki KR í deild og bikar og skorað eitt mark.
Guðlaug Sara var lánuð til 1. deildarliðs Fjölnis í maí og lék með þeim 8 leiki í sumar en snýr nú aftur í KR.
Hún hóf að leika með meistaraflokki KR sumarið 2004 og hefur leikið með þeim 8 leiki en var á láni hjá HK/Víkingi síðasta sumar.



