Afturelding hefur fengið liðsstyrk fyrir lokabaráttuna í 2. deild karla því þrír leikmenn hafa gengið til liðs við félagið nú í lok félagaskiptagluggans.
Fyrstan ber að nefna markvörðinn Ara Þór Kristinsson sem kemur frá Hvöt þar sem hann hafði leikið fimm leiki í 2. deildinni í sumar.
Ari mun leika í marki Aftureldingar í næsta leik í fjarveru Skarphéðins Magnússonar sem fékk rautt í síðasta leik gegn Víði. Þá kom Þorsteinn Magnússon þjálfari liðsins í markið en hann er rúmlega fimmtugur.
Þá kom Einar Óli Þorvarðarson aftur til Aftureldingar frá Gróttu en hann lék síðast með Aftureldingu sumarið 2006.
Hann hefur ekkert leikið í sumar en var hjá Gróttu á síðasta ári þar sem hann lék sem bakvörður á síðasta ári í samtals 15 leikjum og skoraði eitt mark.
Að lokum kemur Snorri Helgason til liðsins frá Hvíta Riddaranum sem er varalið félagsins sem spilar í 3. deildinni en þar lék hann 6 leiki í sumar og skoraði eitt mark.

