Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 14:01
Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík fær Marko Valdimar og sænskan leikmann (Staðfest)
Marko Valdimar Stefánsson í leik með Njarðvík. Hann kemur nú að nýju á láni til félagsins frá Grindavík.
Marko Valdimar Stefánsson í leik með Njarðvík. Hann kemur nú að nýju á láni til félagsins frá Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Njarðvík fékk í dag góðan liðsstyrk fyrir lokahlutann í 1. deild karla þegar Svíinn Mehmet Mehmet og Marko Valdimar Stefánsson komu til félagsins.

Mehemt Mehemt er sænskur miðjumaður sem er fæddur árið 1985.

Hann lék síðast með IK Sleipnirs í heimalandi sínu og kemur til landsins um helgina og hefur æfingar með Njarðvík.

Marko Valdimar Stefánsson kemur frá Grindavík á láni út tímabilið.

Hann er tvítugur miðvörður sem hefur leikið 8 leiki með Grindavík í sumar en hann hefur áður verið hjá Njarðvík þar sem hann var á láni fyrir tveimur árum.
Slapp
banner
banner
banner