Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 14:05
Hafliði Breiðfjörð
Dofri Snorrason í KR (Staðfest)
Dofri í leik með Víkingi.
Dofri í leik með Víkingi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur kallað Dofra Snorrason til baka úr láni hjá Víkingi Reykjavík og hann verður kominn með leikheimild fyrir næsta leik KR.

Dofri hefur aldrei leikið með meistaraflokki KR í keppnisleik en kom nokkuð við sögu hjá liðinu í æfingaleikjum í vor og þótti standa sig vel ýmist sem bakvörður eða kantmaður.

Hann var svo lánaður til Víkings í 1. deildina í maí og vakti stormandi lukku frá fyrsta degi.

Þar lék hann í heildina 13 leiki í 1. deildinni og skoraði í þeim fimm mörk.

Þá lék hann þrjá bikarleiki og skoraði tvö mörk í þeim leikjum.

Hann snýr nú aftur til KR þar sem Rúnar Kristinsson hefur tekið við þjálfun liðsins af Loga Ólafssyni.
Slapp
banner
banner