Heimild:  
lau 31.júl 2010 06:00 Hafliði Breiðfjörð,
Freddy Adu náði ekki að sanna sig á reynslu í Sviss
Freddy Adu.
Mynd: NordicPhotos
Bandaríkjamaðurinn Freddy Adu sem eitt sinn þótti mesta efni heims í fótboltanum virðist ekki hafa náð að springa út eins og búist var við og nú hefur lið í Sviss ákveðið að bjóða honum ekki samning eftir að hann kom þangað á reynslu.

Það var félagið Sion sem tilkynnti á vef sínum í gær að Adu hefði óneitanlega hæfileika en að hann hentaði ekki plönum félagsins.

Benfica í Portúgal á leikmanninn en hann var lánaður frá þeim til gríska félagsins Aris Thessaloniki á síðustu leiktíð.

Hann er 21 árs gamall framherji sem var ekki valinn í lokahóp Bandaríkjanna sem fór á Heimsmeistaramótið í Suður Afríku í sumar.

Hann sló fyrst í gegn aðeins 14 ára gamall í leik með DC United í bandarísku atvinnumannadeildinni.

Sion hafði möguleik á að fá Adu því eins árs félagaskiptabann sem félagið er í mun ekki taka gildi fyrr en í janúar.

Nýjustu fréttirnar