Henry segir útilokað að hann spili aftur fyrir Frakka
Thierry Henry framherji New York Red Bulls í Bandaríkjunum segir að hann muni aldrei spila aftur fyrir franska landsliðið að nýju, jafnvel þó Laurent Blanc nýr þjálfari liðsins og fyrrverandi liðsfélagi bæði hann um það.
Henry tilkynnti eftir Heimsmeistaramótið í Suður Afríku að hann væri hættur að spila með landsliðinu eftir rúmlega 12 ár með liðinu.
Hann hafði skorað 51 mark í 123 leikjum fyrir Frakkland sem er met.
Hann er 32 ára gamall og var í viðtali við franska íþróttadagblaðið L'Equiope í gær þar sem hann var spurður hvort hann myndi snúa aftur ef Blanc bæði hann um það.
,,Þessu er lokið, ég mun ekki koma aftur í franska liðið," svaraði hann.
Henry var í franska landsliðshópnum sem fór í verkfall á Heimsmeistaramótinu í sumar eftir að Nicolas Anelka var sendur heim fyrir að móðga Raymond Domenech landsliðsþjálfara.