Garðar Jóhannsson í Stjörnuna (Staðfest) - Steinþór fer líklega
Framherjinn Garðar Jóhannsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt, Stjörnuna, að nýju en þýska knattspyrnusambandið hefur staðfest félagaskipti hans og þau ganga því í gegn hjá KSÍ í dag.
Þetta staðfesti Sigurður Guðmundsson hjá Stjörnunni við Fótbolta.net í dag en hann sagði þó samkomulag um að ef eitthvað erlent félag ber víurnar í Garðar þá megi hann fara þangað.
,,Það er samkomulag um að ef hann fær eitthvað úti þá megi hann fara þangað," sagði Sigurður við Fótbolta.net.
,,Annars verður hann með okkur út þetta tímbil og allar líkur á að hann verði næsta tímabil líka. Svo verður hann væntanlega líka næstu 4-5 árin eða þar til hann leggur skóna á hilluna."
Sigurður sagði ekki alveg ljóst hvort Garðar muni ná næsta leik Stjörnunnar sem er gegn hans fyrrum félögum í KR á fimmtudaginn næsta þar sem hann er að klára sín mál úti. Félagið gerir sér þó vonir um að hann verði með þá.
Þá sagði hann allar líkur á að Steinþór Freyr Þorsteinsson fari frá Stjörnunni til Örgryte í Svíþjóð áður en félagaskiptaglugginn lokar.
,,Ég á von á því að við náum samkomulagi við þá í kvöld og þá gerum við ráð fyrir því að hann fari fyrir 1. ágúst," sagði Sigurður að lokum.