Heimild:  
lau 31.júl 2010 06:00 Hafliði Breiðfjörð,
UEFA hafnar Mallorca um að spila í Evrópudeildinni
Mynd: NordicPhotos
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur hafnað áfrýjun spænska félagsins Mallorca um að spila í Evrópudeildinni á komandi leiktíð.

Ákvörðun þessa efnis var tekin í gær þar sem Mallorca uppfyllti ekki skilyrði í reglum sambandsins, þrátt fyrir að spænska knattspyrnusambandið hafi gefið félaginu leyfi til að spila í Evrópudeildinni fyrir sitt leyti.

Mallorca getur áfrýjað ákvörðun UEFA til gerðardóms en félagið hafði unnið sér sæti í Evrópudeildinni með því að enda í fimmta sæti spænsku deildarinnar.

Félagið ákvað svo að fara í greiðslustöðvun vegna 60 milljón evra skulda sinna og það verður til þess að þeir missa af sætinu.

Villarreal sem endaði í sjöunda sætinu tekur sæti Mallorca í Evrópudeildinni en Getafe sem endaði í sjötta sætinu fer líka í pottinn þegar drátturinn fer fram á föstudag.

Nýjustu fréttirnar