Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 31. júlí 2010 09:30
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Celtic staðfestir stórt tilboð í Aiden McGeady
Neil Lennon knattspyrnustjóri Celtic staðfesti í gær að stórt tilboð hafi borist í kantmanninn Aiden McGeady.

McGeady sem er 24 ára gamall hefur verið orðaður frá skoska félaginu undanfarinn mánuð en talið er að Spartak Moskva hafði boðið 8,3 milljónir punda í hann.

Lennon sagðist ekki vita hvort þessi írski landsliðsmaður muni yfirgefa félagið fyrir byrjun komandi leiktíðar.

,,Það er mikill áhugi, ekki bara frá Moskvu. Við teljum að það séu líka önnur félög sem hafa áhuga," sagði hann.

McGeady hafði skrifað undir fimm ára samning við félagið árið 2008 en hann var ekki með í leiknum gegn Braga í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í síðustu viku.
Slapp
banner
banner
banner