Heimild: AP
Alejandro Sabella þjálfari Estudiantes í Argentínu er í viðræðum um að taka við stöðu landsliðsþjálfara þjóðarinnar. Þetta staðfesti talsmaður félagsins í gær.
Sabella myndi taka við starfinu af Diego Maradona sem hætti með liðið á þriðjudag eftir að hafa ekki náð samkomulagi um áframhaldandi samning.
Sergio Neveleff talsmaður Estudianted óttast að vináttuleikur liðsins gegn Sheffield United, sem Sabella lék með á árunum 1978-1980, gæti verið síðasti leikur þessa 55 ára þjálfara svið stjórn liðsins.
,,Sem stuðningsmaður og meðlimur félagsins vona ég ekki," saðgi Neveleff við BBC.
,,Við vorum vissir um að Alex myndi verða þjálfari okkar til langs tíma, en núna truflar staða landsliðsins okkur. Í Argentínu er eftirsóttast að vera landsliðsþjálfari."



