Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 31. júlí 2010 12:02
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: PA 
George Boateng til Skoda Xanthi (Staðfest)
George Boateng fyrrverandi miðjumaður Hull City og Aston Villa er genginn til liðs við Skoda Xanthi í Grikklandi.

Boateng sem er 34 ára gamall hefur verið orðaður við WBA og Celtic í sumar.

Samningur hans við Hull rann út í sumar eftir að liðið féll út úr ensku úrvalsdeildinni.

Boateng hóf feril sinn í heimalandi sínu, Hollandi, með Excelsior en fór þaðan til Feyenoord áður en hann fór til Englands.

Þar lék hann með Coventry og Middlesbrough auk Aston Villa og Hull.
Slapp
banner