Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 31. júlí 2010 10:00
Hafliði Breiðfjörð
Ekki gleyma útvarpsþættinum Fótbolta.net í hádeginu
Elvar Geir og Tómas Þór spjalla um fótbolta á X-inu milli 12 - 14 í dag.
Elvar Geir og Tómas Þór spjalla um fótbolta á X-inu milli 12 - 14 í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað í hádeginu í dag þrátt fyrir Verslunarmannahelgi. Þátturinn er á dagskrá alla laugardaga milli 12 og 14 á X-inu FM 97,7.

Þáttastjórnendur munu skoða stöðuna á Íslandsmótinu vel og vandlega en nú eru línur farnar að skýrast í flestum deildum.

Meðal annars verður hringt til Vestmannaeyja þar sem Eyjamenn fá mikinn fjölda í heimsókn á Þjóðhátíð um helgina og stemningin skoðuð hjá toppliði ÍBV.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson en ef þú hefur eitthvað fram að færa í þáttinn er tölvupósturinn [email protected]. Hægt er að hlusta á X-ið á netinu með því að smella hérna

Smelltu hér til að hlusta á eldri útvarpsþætti
Slapp
banner
banner
banner