Heimild: Sky
Javier Hernandez skoraði gegn nýjum liðsfélögum sínum í Manchester United er enska liðið tapaði 3-2 fyrri Chivas Guadalajara í æfingaleik í nótt.
Hernandez spilaði fyrri hálfleikinn með gamla liðinu sínu og þann síðari með nýja liðinu. Hann var fljótur að stimpla sig inn þegar hann skoraði fyrir Chivas eftir 8 mínútna leik við mikla hrifningu áhorfenda.
Chris Smalling sem er einnig nýliði hjá Man Utd jafnaði metin tveimur mínútum síðar en Adolfo Bautista kom Chivas aftur yfir á 38. mínútu og Hector Reynoso skoraði þriðja markið rétt fyrir hálfleik. Nani minnkaði muninn svo í 3-2 á 79. mínútu og þar við sat.
Vangaveltur hafa verið uppi um hvort Sir Alex Ferguson stjóri Man Utd muni lána Hernandez frá félaginu strax fyrstu leiktíðina en hann sagðist í viðtali eftir leik ætla að nota hann.
,,Ég hef glímt við Evrópuleiki og það er mjög mikilvægt að verjast skyndisóknum og halda boltanum," sagði hann. ,,Ég tel að Chicharito (Hernandez) geti spilað sem eini framherjinn í mínu liði, engin spurning. Hann gerði það fyrir Mexíkó á Heimsmeistaramótinu."




