Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 31. júlí 2010 13:10
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sporting Life 
David James: Hætti aldrei með enska landsliðinu
Markvörðurinn David James sem í gær gekk til liðs við Bristol City segir að hann vonist enn eftir að vera valinn áfram í enska landsliðið enda ætlar hann sér aldrei að hætta með liðinu.

James verður fertugur á morgun en skrifaði undir eins árs samning við Bristol City með möguleika á eins árs framlengingu í gær.

,,Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér og það var það sama fyrir Heimsmeistaramótið ef ég á að segja alveg eins og er," sagði James á vef Bristol.

,,Ég naut Heimsmeistaramótsins mjög mikið en auðvitað voru úrslitin og niðurstaðan vonbrigði."

,,Ég hætti aldrei með enska landsliðinu og vonandi mun frammistaða mín með Bristol City halda mér áfram í myndinni."

Slapp
banner
banner
banner