Heimild: BBC
Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham er ósáttur við vináttuleik enska landsliðsins gegn Ungverjalandi í næsta mánuði en liðin mætast 11. ágúst á Wembley, þremur dögum áður en enska úrvalsdeildin hefst.
,,Getur einhver sagt mér afhverju það er landsleikur í sömu viku og tímabili hefst?" sagði Redknapp. ,,Þeir hafa verið í burtu saman á Heimsmeistaramótinu. Þeir eru líklega búnir að fá nóg af því að sjá hvorn annan."
Redknapp gagnrýndi einnig sitt eigið félag fyrir dagskrána á undirbúningstímabilinu sem honum þykir of þétt og gæti truflað þátttökuna í Meistaradeild Evrópu.
,,Þetta hefur verið annasöm ferð hjá okkur," sagði hann. ,,Við vorum að koma úr erfiðri ferð til Ameríku. Þetta er brjálæði. Og við eigum fleiri leiki á döfinni, það síðasta sem við þurfum núna er að spila leiki."
,,Við þurfum að æfa, ég þarf að koma leikmönnunum á æfingasvæðið því það eina sem við gerum er að spila og jafna okkur. Við ættum að vera að vinna á æfingum. Það er búið að setja á of marga leiki. Ég veit ekki hverjum það er að kenna. Við spilum of marga leiki."
,,Við spilum við Fiorentina á laugardaginn (7. ágúst), sem er rugl, svo fara þeir og spila fyrir landslið sín. Þeir fara í landsleikjahlé fyrir fyrstu umferð tímabilisins, áður en við spilum gegn Manchester City og svo í undankeppni Evrópukeppninnar."
,,Ég sé þá ekki frá laugardagskvöldi fram á föstudag áður en við spilum gegn Man City 14. ágúst. Ekki einu sinni. Afhvejru, til hvers? Tilgangslaus vináttuleikur. Vikuna fyrir tímabilið, þegar við ættum að vera að æfa, vinna, skipiuleggja okkur fyrir fyrsta leik, þeir verða ekki hérna. Hvernig getur það verið undirbúningur fyrir byrjun tímabilsins. Maður krossleggur fingur og vonar að það komi ekki of margir meiddir til baka."



