Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 31. júlí 2010 11:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Powerade slúðrið: Defour til Liverpool?
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið úr ensku götublöðunum.

Roy Hodgson stjóri Liverpool íhugar nú að bjóða 10 milljónir punda í Steven Defour miðjumann Standard Liege og belgíska landsliðsins sem hann vill fá í stað Javier Mascherano. (Daily Mail)
Inter Milan er að bjóða 20 milljónir punda í Mascherano en Rafael Benítez fyrrverandi stjóri Liverpool er hjá Inter í dag. (Daily Express)

Manchester City gengur illa að ná samkomulagi við Aston Villa um kaup á miðjumanninum James Milner. Villa vill fá 30 milljónir punda en City er bara tilbúið að greiða 24 milljónir. (The Sun)

West Ham hefur hafnað 9 milljón punda tilboði Stoke í framherjann Carlton Cole. (The Sun)

Mark Hughes nýr stjóri Fulham ætlar að fá Craig Bellamy til félagsins sem hann vonar að velji Fulham í stað Tottenham þegar hann fer frá Manchester City. (The Sun)

Birmingham íhugar að hækka tilboð sitt í Charles N'Zogbia kantmann Wigan úr 8 milljónum punda í 10. (Daily Mail)

Mesut Özil sem er á óskalista Manchester United og Arsenal segir að hann gæti farið til Real Madrid en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Werder Bremen og þýska félagið er tilbúið að hlusta á tilboð. (IM Scouting)

Aleksandr Hleb miðjumaður Barcelona gæti verið á förum frá félaginu og Tottenham, Liverpool, Aston Villa, Sunderland og West Ham hafa áhuga. (IM Scouting)

Blackburn hefur boðið Ricardo Faty miðjumanni Roma á reynslu og vilja svo kaupa hann á 1 milljón punda. Leikmaðurinn hefur verið á láni undanfarin tvö ár, fyrst hjá Bayer Leverkusen, svo hjá Nantes. (Daily Mail)

Miðjumennirnir Emmanuel Firmpong og Mark Randall hjá Arsenal eru á óskalista Southampton og Hull sem vilja þá á láni. (Daily Mail)

Jon Stead framherji Ipswich gæti farið til Blackpool á 250 þúsund pund. (Daily Mirror)

Mido er svo reiður yfir að Middlesbrough vill fá eina milljón punda fyrir hann fari hann til Ajax að hann hótar að sitja út síðasta árið af samningi sínum í mótmælaskyni. (Daily Mirror)

Arsene Wenger stjóri Arsenal segir að Cesc Fabregas verði áfram hjá félaginu næstu fimm árin þrátt fyrir áhuga Barcelona. (Daily Mirror)
Slapp
banner
banner