Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 31. júlí 2010 11:29
Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan fær bandarískan framherja (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Kvennalið Stjörnunnar fékk í dag liðsstyrk þegar bandaríski framherjinn Rachael Rapinoe fékk leikheimild með félaginu.

Rapinoe er 25 ára gömul og á einnig tvíburasystur í fótboltanum. Hún lenti í erfðum meiðslum á hné bæði árin 2007 og 2008 en hefur nú náð sér að fullu.

Hún kemur nú til Stjörnunnar síðustu vikur tímabilsins og hefur þegar fengið leikheimild svo hún er klár í slaginn í næsta leik á föstudag.

Hún er fjórði erlendi leikmaðurinn hjá Stjörnunni því þrír leikmenn komu frá Bandaríkjunum fyrir tímabilið.

Það voru þær Katie McCoy, Lindsey Shwartz og Laura King.
Slapp
banner