Sandor Zoltan Forizs er genginn til liðs við Fjarðabyggð og hefur þegar fengið leikheimild með sínu nýja félagi.
Hann kemur til félagsins frá Samherjum sem leika í 3. deildinni en þangað hafði hann komið frá KA fyrir tímabilið og lék þar sjö leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.
Hann kemur til félagsins frá Samherjum sem leika í 3. deildinni en þangað hafði hann komið frá KA fyrir tímabilið og lék þar sjö leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.
Sandor er reyndur varnarmaður frá Ungverjalandi en hann lék fimmtán leiki í fyrstu deildinni síðastliðið sumar.
Sandor kom hingað til lands árið 2003 og lék þá með Leiftur/Dalvík en hann hefur einnig leikið með KS/Leiftri hér á landi.


